Komið þið blessuð og sæl !

Vá, það er allt of langt síðan að það var bloggað eitt stykki blogg inná þessari blessaðari síðu hérna hjá okkur .. ( - :
Búið að ske alveg heill hellingur hérna hjá mér síðan síðast. Eitt af því er að ég er búin að fjárfesta í eitt stykki hesti ! Rosalega ánægð með hann. Erum mikið að pæla í að kalla hann Galdur eða Galdur frá Krossi

Hann er fífilbleikur / tvístjörnóttur og með alveg roslega mikið fax ! Hérna er smá ættfræði ...
F.: Tvistur frá Krossi
FF.: Gauti frá Reykjavík
FM.: Nanna frá Kolkuósi
M.:Bleik frá Krossi
MF.: Stígandi frá Kolkuósi
MM.: Bleik frá krossi

Eins og ég sagði áðan þá er hann rooosalega faxprúður !
Eva kom með mér að sækja hann og var það rosaleg ferð skal ég segja ykkur !

Byrjuðum á því að vera ákúrat á tíma og sagði pabbi að þetta væri ótrúlegt vegna þess að við erum aldrei á tíma, og auðvitað klúðraðist þetta allt saman ... x'D
Byrjuðum á því að keyra á barð og vorum að reyna festa kerruna við bílinn þegar að við föttuðum að dekkin voru víst loftlaus. Það var því brunað á ketilás með kerruna í eftirdragi og get ég svarið það að ég hef aldrei keyrt eins hægt á þjóðveginum !!
Síðan var náð að pumpa í þessi blessuðu dekk og við loksins náðum að leggja af stað.
Þegar að við komum þá tók Inga á móti okkur og var búin að setja hrossið inní rétt og allt þannig að það eina sem að við þurftum að gera var bara að bakka að réttinni og opna kerruna. Og þótt ótrúlegt sé þá náði pabbi að bakka henni í fyrstu tilraun !! Eins og hann sagði sjálfur þá var þetta bara 130% heppni x')
Ég og Eva hengum við gerðið á meðan að tveir menn voru að reyna að reka hrossið mitt uppí kerruna. Þó að hárið sé alveg rosalega sítt þá er alveg hrillilega mikill flóki í því og sagði eva að þetta minti hana á fléttur sem að Jamaica búar eru alltaf með í hárinu x)
En við komum honum uppí kerru í annari tilraun, reyndar hafði hann brotið spýtuna sem að við notuðum til að leiða hann að kerrunni en það gerði ekkert til.
Síðan var brunað með hann í fjörðinn fagra

Leggðum bílnum bara inní túninu og opnuðum kerruna. Reynar fattaði minn maður ekki alveg strax að kerran væri opin og pabbi þurfti að opna að framan og fara þar inn. Hesturinn er svo styggur þannig að hann byrjaði strax að bakka og var frelsinu fegin þegar að hann kom út. En það stóð ekki lengi vegna þess að öll hrossin á túninu hópuðust í kringum hann og lætin byrjuðu. Það var sparkað og hneggjað og allt mögulegt og á endanum tóku þeir allir á rás og greyið mitt var fremstur að reyna að stinga þá alla af en hinir gáfust ekki upp ! Síðan róaðist þetta allt niður enn Hrani og Mari reyndar hittu hann eitthvað einan út í einu horninu á túninu og þar var rætt aðeins málin ....
Ég er allavega að fara að kíkja á hann á morgun og sjá hvernig ástandið þarna er.
Annars er voðalega lítið að frétta héðan frá mér ... Er búin að liggja heima undanfarna daga með þessa leiðinlegu flensu sem að bendir allt til á að ég hafi verið með svínaflensuna. Fór til læknirs og hann sagði að ég ætti bara að taka því rólega og helst bara liggja heima þar til að ég hressist. En það er ókeðslega gott fyrst en þegar að þetta er komið í tveggja vikna afslöppun heima að gera ekkert nema að horfa á sjónvarpið þá er þetta ekkert skemmtilegt lengur ...
En guð minn góður, að velja nafn á hross er rosalega erfitt !! Ég kvíði bara fyrir því þegar að ég þarf að fara að velja nöfn á börn !! Það er svo rosalega mikið úrval og manni kannski lýst á eitthvað en er svo hræddur um að fólk eigi bara eftir að horfa á mann og hugsa " hvað var manneskjan að pæla eiginlega þegar að hún nefndi hestinn ? " haha

En held barasta að nafnið Galdur sé bara fínt !
Vitið þið ég er að pæla í því að hoppa bara uppí rúm, klukkan orðin þetta margt og ég frekar þreytt ....
kv.
Guðný Eygló